föstudagur

Hér kemur Lillimann Klifurmús...

Þar sem stóri strákurinn minn fór í hálskirtlatöku fyrir viku síðan hefur hann verið heima alla þessa viku. Það er yndislegt að hafa hann hérna, en það getur þó stundum tekið á þolinmæðina bæði hjá mér, honum og litla bróður hans. Þá er bara að anda djúpt og telja upp að 10. Það hjálpar alltaf að hafa eitthvað spennandi að gera og á meðan litli bróðir sefur úti í vagni dundum við Víðar Freyr okkur.

Ég skoða pinterest mjög mikið og fæ oft hugmyndir þaðan. Ég reyni oftast að nota eitthvað af því sem til er í staðinn fyrir að rjúka út í búð og kaupa allt sem fyrirmyndin notast við, og oftast endar það svona.


Hér á heimilinu fara eggjabakkar og klósettpappírsrúllur ekki í ruslið heldur inn í skáp. Þegar okkur mæðgin vantar afþreyingu öðlast þetta svo framhaldslíf. Fyrr í vetur, þegar frumburðurinn var heima með hlaupabólu, reyndum við að gera svona lest:

Víðar Freyr málaði á meðan litli bróðir skreið ofan í kassa

og þó að útkoman hafi ekki verið alveg eins og fyrirmyndin voru legókarlarnir hæstánægðir með nýja farartækið sitt!


Í gær fundum við mæðgin svo verkefni sem ekki var hægt að klúðra. Við fórnuðum einum eggjabakka og klipptum keilurnar af. Máluðum þær svo og létum þorna.

Þegar "nefin" voru þurr var einfalt mál að þræða veiðhár í gegn, binda hnút og festa teygju á. Næsta klukkutímann sönglaði Víðar Freyr rebbavísur og hótaði að éta allar kökurnar mínar, á milli þess sem hann lagðist á gólfið og skipaði mér að syngja fyrir sig vísu. Ég er ekki viss um að raddbeitingin hafi verið sú besta fyrir auman háls, en þvílík skemmtun!

þriðjudagur

Hæ, ég er hér ennþá. Það er þetta með að byrja á hlutunum og klára þá ekki, hefur haldið mér í burtu í tvennum skilningi. A) að byrja að blogga aftur, gera það einu sinni, tvisvar og svo ekki meir, og B) tíminn sem fer í að klára peysuna sem ég er að prjóna á Andra. Eins og mér finnst skemmtilegt að prjóna þá er ýmislegt sem tefur peysugerðina. Almennt líf með tvö börn á heimilinu er það fyrsta. Ég er ekki enn búin að mastera tæknina við að prjóna með barn í fanginu. Þetta er líka í fyrsta sinn sem ég prjóna peysu í karlmannsstærð. Þar sem Andri er frekar herðabreiður (og myndarlegur) maður ákvað ég að hafa peysuna í XL, en þar sem hann er ekki (svo) mikill um sig miðjan er hún prjónuð á prjóna 3,5 í staðinn fyrir 4,5. Og þar lágu mistökin. Það tekur nefnilega lúmskan tíma að prjóna þær aukaumferðir sem þarf. Og svo veit ég ekkert hvort þetta virkar þegar kemur að mynstrinu... En það verður tíminn bara að leiða í ljós!

Um daginn tókum við borðkrókinn í eldhúsinu okkar í gegn. Andri hengdi hilluna sem ég "smíðaði" upp og nú sé ég matreiðslubækurnar mínar í hvert skipti sem ég fer út úr eldhúsi. Auðvitað þýðir þetta að mér dettur miklu oftar í hug að elda eða baka eitthvað "framandi" og skemmtilegt. Ég er ekki alveg eins myndarleg í eldhúsinu og Sigurborg vinkona sem birtir myndir á facebook sem fá mig til að slefa. Ég er heldur ekki eins dugleg og Ragna á ragna.is en það blogg skoða ég reglulega og mæli með. En mér finnst gaman að baka og skreyta kökur.



Í gær varð uppskrift úr bókinni Súkkulaðiást fyrir valinu. Andri gaf mér bókina í jólagjöf fyrstu jólin okkar og það er allt sjúklega girnilegt sem í henni er! Og stúúútfullt af súkkulaði...


Ég fletti í gegnum bókina og stoppaði við titilinn "Brownies með karamellukeim". Eða frekar - ég stoppaði við myndina. Ótrúlegt hvað hindber, súkkulaði og mynta gera góða (og girnilega) mynd. Og fyrir skemmtilega tilviljun átti ég akkúrat passlega mikið súkkulaði uppi í skáp.*


Mér persónulega finnst fátt blandast eins girnilega saman og súkkulaði og smjör. Nema þá kannski smjör og kanill. Eða humar og hvítvín. En þið vitið hvað ég meina.

Í uppskriftinni stendur að kakan eigi að vera í 20-22 mínútur í ofninum. Ég held að hálftími, jafnvel 40 mínútur væru nær lagi því ég þurfti að setja mína aftur inn í ofn. En hvern hefði grunað í sólinni í gær að í rigningunni í dag væri best í heimi að eiga súkkulaðiköku og gott kaffi...


*Passlega mikið súkkulaði er hér skilgreint sem það magn sem er í uppskrift + tveir molar í munn.

miðvikudagur

Rómantík

Fæstir myndu kalla minn heittelskaða rómantískan mann. Allavega ekki í hinum hefðbundna skilningi hugtaksins. Ég aftur á móti les rauðu ástarsögurnar mér til dægradvalar og kann helstu lögin hennar Celine Dion utanað (komst að því þegar við vorum að keyra um daginn, honum til mikillar skemmtunar). Um daginn fór ég út að skokka og kom með þetta heim og færði honum.

"Blóm? Fyrir mig?" Spurði hann þegar ég kom færandi hendi. Svo kom svipurinn. "Til hvers? Hvað á ég að gera við blóm?" (Sem betur fer fylgdi eitt lítið súkkulaðistykki, ég þekki minn mann. En blómin fara ljómandi vel í stofunni!) Minn elskulegi hoppaði því ekki hæð sína af gleði þegar mamma pantaði miða fyrir okkur tvö í leikhús og bauðst til að passa á meðan. Brosið fraus á andlitinu á honum þegar hún fór að lýsa verkinu sem hún hafði jú sjálf séð stuttu áður. Rómantísk, hádramatísk ástarsaga frá miðöldum, byggt á sannsögulegum atburðum og því tilvalið fyrir sagnfræðinginn! Anna í Stóru-Borg í uppfærslu Leikfélags Austur Eyfellinga. Sýningin var skemmtileg. Verkið er, eins og lýsing móður minnar gefur til kynna, ekki gamanstykki, en það þarf ekki allt að vera fyndið til að vera skemmtilegt. Mér fannst skemmtilegt hvernig rýmið í félagsheimilinu Heimalandi var nýtt, ekki eingöngu sviðið heldur áhorfandaskarinn, hellir fyrir framan svið og svo fremsta svæðið í salnum. Góð útfærsla til að koma í veg fyrir langar tafir á meðan skipt er á milli leikmynda, það er jú sjaldan hringsvið í félagsheimilum. Flestir léku ágætlega og þrátt fyrir að sitja hér um bil aftast heyrði ég næstum allt. Sumir voru skýrmæltari en aðrir og aðrir léku betur en hinir en heilt á litið var þetta bara fín áhugamannasýning! Og Andri, sem hafði á leiðinni haft efasemdir um að ná að halda sér vakandi, sofnaði ekkert. Á leiðinni til baka var þó ákveðið að hann sjái um skipulagningu og val á afþreyingu næst þegar við fáum pössun fyrir stefnumót.

föstudagur

Enn á ný, einu sinni enn...

Ég skilaði ritgerð um daginn og fékk umsögnina "skipulega skrifað, sumt prýðilega orðað". Ég er nokkuð viss um að það hafi verið meint sem hrós, svona miðað við einkunina 9, ég ákvað í það minnsta að taka því þannig. Og þá rifjaðist upp fyrir mér að hér í eina tíð hélt ég úti bloggi. Síðustu árin hef ég nefnilega fátt skrifað, eitt og eitt verkefni í söngskólanum og stöðuuppfærslur á Facebook. Í haust dreif ég mig svo aftur í bóklegt nám og hef því þurft að nota lyklaborðið á nýjan leik. Og það er stundum bara drullugaman! Svo ég ákvað að rifja upp gamla takta. Ég gerði reyndar tilraun til þess fyrir að verða tveimur árum, en sú tilraun varð skammlíf. Ég er nefnilega mjög góð í því að byrja á hlutum, ekki eins góð í að fylgja þeim eftir og klára. Þetta sést meðal annars á þeim óteljandi skiptum sem ég segist ætla að koma mér í form, fer út að hlaupa þrisvar i viku, og svo ekkert í þeirri næstu... Eða þegar ég sé prjónauppskrift sem ég bara verð að prjóna, kaupi garn og byrja, fer hratt af stað, sé svo annað girnilegt verkefni og skil það gamla eftir... Ég held að ég sé með þrjár flíkur á prjónunum núna og skrilljón garnhnykla út um allt, eitthvað sem minn heittelskaði pirrar sig stundum á. 

En nú eru próf á næsta leiti, og næsta víst að ég finni mun frekar tíma til að blogga, prjóna, baka og taka til heldur en að lesa undir þau. Svo hér verður líklega líf þangað til 6.maí!




sunnudagur

Nú árið er liðið í aldanna skaut

Nú árið er liðið í aldanna skaut
og aldrei það kemur til baka,
nú gengin er sérhver þess gleði og þraut,
það gjörvallt er runnið á eilífðar braut,
en minning þess víst skal þó vaka.

"og aldrei það kemur til baka". Kannski sem betur fer. Annars var árið 2008 alveg ágætis ár, viðburðaríkt og skemmtilegt. Að mestu. Ég flutti aftur í Breiðholtið, vann sem barþjónn og ritari, kláraði framhaldspróf og hélt tónleika, kóraðist með Nobili og byrjaði líka í Háskólakórnum, gerðist fastagestur á Kofa Tómasar frænda, færði mig svo yfir á Celtic með haustinu, var aðdáandi númer eitt á Bítboxinu, fór á óteljandi tónleika af öllum stærðum og gerðum, söng á óteljandi tónleikum af öllum stærðum og gerðum, kynntist fullt af æðislegu fólki, bjó til brjóstsykur, byrjaði að læra á píanó, horfði á handbolta, fór í brúðkaup, hló, grét og lifði.


En hvers er að minnast og hvað er það þá,
sem helst skal í minningu geyma?
Nú allt er á fljúgandi ferð liðið hjá,
það flestallt er horfið í gleymskunnar sjá.
En miskunnsemd Guðs má ei gleyma.

Jólum og áramótum eyddi ég heima á suðurlandinu. Smákökur og mandarínur, jólaöl, hangikjöt, flatkökur, hamborgarhryggur, fjós og fjárhús, fjölskylduboð, brjóstsykursgerð, messa, kvef, áramótabrenna og skaup, áramótaball, myndatökur og hamingja. Einn mesti gleðigjafi minna jóla var tveggja mánaða tík sem við fengum um miðjan desember. Eftir mikla umhugsun hlaut hún nafnið Katrín Jakobína, en eftir enn meiri umhugsun var ákveðið að í daglegu tali skyldi hún kallast Trína(bína). Þá var aðalega litið til þess hversu kjánalega pabbi myndi líta út þegar hann sigaði henni í smalamennsku. Hún er afskaplega kát og kelin.

Hún birtist á vori sem vermandi sól,
sem vöxtur í sumarsins blíðum,
í næðingum haustsins sem skjöldur og skjól,
sem skínandi himinn og gleðirík jól
í vetrarins helkuldahríðum.

Eitt skemmtilegasta augnablik jólanna (svona eftir á í það minnsta) gerðist á leið út í fjós eitt kvöldið. Ég fór í þykka ullarsokka og fjósagalla, fann svo til stígvélin og rak tánna ofan í annað. Rak hins vegar upp feikna öskur og henti því í burtu þegar ég steig á eitthvað sem ég áleit að væri mús (annað eins hefur komið fyrir)! Árný systir tók stígvélið og lofaði að sturta úr því fyrir mig, því þó ég sé ekki múshrædd manneskja brá mér töluvert við að fá eina þannig í stígvélið. Úr stígvélinu rúllaði þó ekki mús, heldur kartafla! Við systur hlógum svo mikið að ég stóð varla í lappirnar, og Trína glotti úti í horni...


Hún birtist og reynist sem blessunarlind
á blíðunnar sólfagra degi,
hún birtist sem lækning við böli og synd,
hún birtist þó skærast sem frelsarans mynd,
er lýsir oss lífsins á vegi.

Svo keyrði ég til Reykjavíkur í gær. Í gegnum þokuna sem lá yfir öllu suðurlandsundirlendinu.

Nú Guði sé lof fyrir gleðilegt ár
og góðar og frjósamar tíðir,
og Guði sé lof, því að grædd urðu sár,
og Guði sé lof, því að dögg urðu tár.
Allt breyttist í blessun um síðir.

Það er hægt að segja að tíminn gangi í hring, árið 2009 hefst á svipuðum slóðum og 2008. Ég hlakka bara til að sjá hvernig það þróast.

Ó, gef þú oss, Drottinn, enn gleðilegt ár
og góðar og blessaðar tíðir,
gef himneska dögg gegnum harmanna tár,
gef himneskan frið fyrir lausnarans sár
og eilífan unað um síðir.

Með kærri þökk fyrir 2008, gleðilegt nýtt ár!

mánudagur

Próflestur

1.
hlakk​ar þú til jólan​na ?
já, megamikið!

2.
ertu stres​suð/​​​stres​saður​ yfir einhv​erju í samba​ndi við jólin​,​​​ ef svo er þá hverj​u ?
ekkert sjúklega, það reddast alltaf allt þó ég sé stundum dáldið á síðustu stundu...:)

3.
ertu jólab​arn ?
já:)

4.
hvar verðu​ru um jólin​ ?
heima í Drangshlíðardal

5.
hverj​um gefur​u jólag​jafir​ ?
fjölskyldunni og svo nokkrum útvöldum vinum

6.
hvað finns​t þér best að fá í jólam​atinn​ ?
Hamborgarhrygg ala mamma. Svo er hangikjötið hjá ömmu á jóladag líka nauðsynlegt

7.
færðu​ það sem þú vilt ?
það skiptir bara engu máli

8.
hvað er plani​ð yfir þorlá​ksmes​su hjá þér ?
Klára að taka til, smakka jólahangikjötið, skreyta og baka, og svo fer jólatréð upp í stofu um kvöldið og við skreytum um leið og við hlustum á kveðjurnar í útvarpinu:)

9.
hvað er plani​ð yfir aðfan​gadag​ hjá þér ?
Borða mandarínur í morgunmat fyrir framan barnatímann í sjónvarpinu, skreyta greni og fara með út í kirkjugarð, setja pakka undir jólatré og gera krakkana og sjálfa mig tilbúna, og hlusta svo á klukkurnar hringja jólin inn klukkan 6:)

10.
hvenæ​r ferð þú í jólaf​rí ?
Á miðvikudag klukkan 13:15


11.
hvenæ​r er það búið ?
5.jan

12.
ferðu​ til útlan​da eða útá land í fríin​u ?
Ég fer heim í sveitina

13.
ertu búin/​​​n að kaupa​ jólaf​ötin ?
Ég ætla ekki að kaupa jólakjól í ár, á svo marga fallega kjóla

14.
gefur​u vinum​ þínum​ jólag​jafir​ ?
já, sumum

15.
hitti​ru vini þína í fríin​u ?
Ég vona að ég hitti Öllu eitthvað, og líklega fýrana, en aðra reikna ég ekki með að hitta nema fyrir jól og svo eftir áramót


16.
hvað finns​t þér skemm​tileg​t við jólin​ ?
samveran við fjölskylduna og afslöppunin

17.
bakar​u pipar​kökur​ eða laufa​brauð​ fyrir​ jólin​ ?
Ekki endilega, piparkökur sum árin og ég bakaði laufabrauð í fyrsta sinn á ævinni í ár! Það eru hins vegar engin jól án þess að fá mömmukökur, ólakökur og flatbrauðið hennar ömmu!

18.
gefur​u keypt​ jólak​ort eða gerir​u sjálf​/​​​ur eða bara alls engin​ ?
Ég sit og föndra

19.
hvað gefur​u marga​r jólag​jafir​?
held þær séu í kringum 20

20.
hvað heldu​ru að verði​ öðruv​ísi við jólin​ í ár vegna​ krepp​unnar​ ?
held þau verði bara voðalega svipuð og jól síðustu ára..

21.
hverj​ir verða​ með þér um jólin​ ?
mamma, pabbi, Lilja Dögg, Árný Rún, Ingólfur Freyr, Jóna Guðlaug, og svo amma og afi í göngufæri:)

Og nú get ég haldið áfram að lesa fyrir óperusöguprófið sem er í fyrramálið...

sunnudagur

Stayin'alive...

Ég ákvað að fara snemma í háttinn í kvöld enda Nobilihelgi og messusöngur í fyrramálið. Það gekk ekki alveg eins og ég planaði því í næsta húsi er partý og inn um gluggann minn berast þessir líka "fögru" tónar þar sem hópur af unglingsstrákum taka falsettuna í fyrrnefndu lagi.
Annars kvarta ég ekki, hef ekki efni á því. Ég á það nefnilega til að taka lagið í þeim partýjum sem ég fer í...

Mikið er ég stolt af bæði stelpunum okkar og strákunum. Síðasta vika búin að vera algjör hátíð í boltaáhorfi. Saknaði Alex dáldið í dag, sérstaklega í fyrri hálfleik, en svo fengu strákarnir vítamínsprautu í rassinn. Svo skemmir ekkert fyrir hvað ég er alltaf veik fyrir Arnóri...


Ég skemmti mér við það áðan að lesa gömul blogg. Las októberblogg frá "brostu og hann bráðnar" yfir á myspacebloggið og svo hingað. Ég er búin að blogga, með hléum, síðan 2002 og það er, thja, áhugavert að sjá hvernig sumt breytist og annað ekki. Svo eru ansi mörg gullkorn sem ég hef látið frá mér. "Að vera naut eða að vera ekki naut? Að vera belja?"

Það er farið að hægjast á hjá nágrönnunum. Ég ætla að nýta tækifærið áður en eftirpartýið byrjar svo og sofna.

Þegar eftirfarandi var sagt flaug mér í huga að ef til vill hefði ég eytt of mörgum árum í kór. Hvað þá núna?

Kórhúmor (2005)


Maja: Veistu hvað ég ætla að kaupa í jólafríinu?
Dísa: Hvað?
Maja: Bassa!
Dísa: Já, hefurðu eitthvað pælt í tenórum?

Kabúmmbúmmtssh...

Og svo gullkornið sem ég fékk sent í skilaboðum á myspace um daginn!

"Being beautiful does NOT make you any less of a whore...".

þriðjudagur

Í anda síðasta pósts...

Fyrst skuluð þið öll fara hingað.

Ég held að ég þurfi að fara að taka til í tenglunum hér til hliðar. Þeir sem ekki hafa bloggað það sem af er ári fá að fjúka (þið látið mig þá bara vita ef þið byrjið aftur..) og nýjir að koma inn í staðinn.

Ég reyndi líka að taka til í tónlistinni á tölvunni minni. Það gekk ekki vel. Ég tími aldrei að eyða tónlist, held alltaf að ég sé að eyða einhverjum perlum sem ég eigi eftir að sjá eftir. Og ef ég á fleiri en eina útgáfu af laginu er gaman að bera þær saman, og ég nota það reyndar mikið í náminu, heyra hvar hin og þessi söngkona andar, hvaða tempó er gott og þannig... En þetta veldur því að minnið á tölvunni minni er hérumbil fullt, og það næstum bara af tónlist og ljósmyndum (tími heldur aldrei að eyða þeim, gæti unnið eitthvað með þær, fiktað og gert þær flottar...)

Það er greinilega eitthvað tiltektaræði runnið á mig. Kom heim af æfingu í kvöld, setti Bítlana á og ákvað að henda öllu út úr skápnum inni á baði, skúraði, skrúbbaði og tók baðherbergið bara alveg í gegn. Vona að ég verði áfram í svona stuði út vikuna því það veitir víst ekkert af að taka restina af íbúðinni almennilega í gegn.

Ég vona að þið hafið skemmt ykkur yfir hláturkeðjunni. Ég gerði það svo sannarlega...



já, þetta eru tár. Ég fékk illa í magann af því að horfa/hlusta á þetta...:)

mánudagur

Til að létta okkur lífið...



(við erum að tala um gæsahúð þegar a) Springsteen hóf upp sína rámu rödd, og b) þegar meistarinn sjálfur Ray Charles birtist)





Við megum ekki gleyma því sem skiptir mestu máli, verum jákvæð, það er svo miklu skemmtilegra...:)







Ykkar einlæg...

Uppfært:
Varð að bæta þessu inn!!!

sunnudagur

Sunnudagur

Ég er væntanlega ekki að segja neinar nýjar fréttir þegar ég tala um snjóinn. Fyrst blótaði ég og hugsaði um blautar tær og köld nef. Ég skipti hinsvegar um skoðun þegar ég labbaði framhjá leikskólanum í hverfinu og heyrði ánægjuna. Hún vóg sterkt upp á móti klöngrinu í hælaskónum í hálkunni (einu lágbotna skórnir mínir eru víst úr sér gengnir og götóttir og því óhæfir í svona tíðarfari). Þegar ég skellti mér svo út í göngutúr með myndavélina mundi ég svo hvað loftið væri ferskt í fyrsta snjónum og tók hann algjörlega í sátt. Hann stoppar hvort eð er varla lengi.

Það er þó óneitanlega óheppileg tilviljun að ofnarnir í kjallaranum hjá mér skuli hafa bilað um svipað leiti og byrjaði að kólna. Pabbi er búinn að fikta mikið í bæði ofnum og vatnskerfi án árangurs, og nú bíðum við eftir pípara. Á meðan eyði ég kvöldunum mínum við kertaljós frá tugum kerta, drekk heitt kakó undir teppi. Helst með góða bók og tónlist.

Talandi um góða bók. Ég útvegaði mér loksins "Hann er bara ekki nógu skotinn í þér". Svo núna sit ég á kvöldin, nú eða bara í strætó, og átta mig á því að "fjórðungurinn" sem þjá(ð)ist af gífurlegri sambandsfóbíu var bara greinilega ekki nógu hrifinn af mér. Erfitt að viðurkenna fyrir sjálfri mér, en um leið er ég voðalega fegin að hafa loksins áttað mig á því (tók mig líka nógu langan tíma, 3 ár?). Eins og vinir mínir hafa verið duglegir að benda mér á þá á ég nefnilega betra skilið. Og ég ætla að njóta þess að vita að ég er frábær.



Núna ætla ég hinsvegar að fara á kóræfingu og syngja jólalög...

föstudagur

...

Ég er andvaka. Það gerist ansi oft, en venjulega er ástæðan allt of mikið hugs. Núna hef ég aðra ástæðu. Ég er nefnilega fjandi þreytt.
Þegar ég var hér um bil búin að hósta úr mér lifur og lungum í rúman hálfan mánuð sendi mamma mig til læknis. Og þar sem hóstinn var ansi djúpur og ljótur setti hann mig á sýklalyf, fyrirbyggjandi fyrir lungnabólgu. Í gær, viku seinna, vaknaði ég svo upp með þetta ferlega pensilínofnæmi og þrátt fyrir að ég bryðji ofnæmistöflur í eins miklu magni og ég má klæjar mig og svíður í næstum allan kroppinn. Svo til að koma í veg fyrir það sit ég hér og hlusta á tónlist og læt fingurna svífa um lyklaborðið á milli þess sem ég skoða myndbönd á youtube.

Annars gengur lífið bara sinn vanagang. Ég fór í Háskólakórinn og líkar vel, var kosinn formaður Nobili sem ætlar að vera megaöflugur í vetur og fara, sjá og sigra í kórakeppni í Wales næsta sumar, og skólinn er byrjaður á fullu.

Ég er algjörlega ástfangin af þessu lagi. Textinn, sönglínan, píanóið, fullkomið. Að hugsa sér að Hahn hafi bara verið 13 ára þegar hann samdi það er ótrúlegt!


Í kvöld var ég á námskeiði í sambandi við nýju vinnuna mína. Vinnu sem hefur möguleika á að verða skemmtilegasta vinna sem ég hef unnið við. Núna í október byrja ég að kenna fólki að búa til brjóstsykur! Bjó til þrjár gerðir í kvöld og fékk að smakka besta brjóstsykur ever, heitan og glænýjan! Kom mér ótúlega mikið á óvart hversu auðvelt það er að búa hann til. Ef þið hafið áhuga á að læra talið bara við mig, aldrei að vita nema ég gefi einhvern vinaafslátt á námskeið...;)

Annað tónskáld sem ég held afar mikið upp á er Roger Quilter. Það er eins með þetta lag (get ekki sett myndbandið hér inn en mæli eindregið með að þið klikkið á tengilinn...), ljóðið, píanóið, það sem ekki er sagt en hægt að ímynda sér, fullkomið! Svo skemmir röddin á Ian Bostridge ekkert fyrir. Ég er að syngja þetta lag og ef ég næ broti af þessari mýkt er ég sátt.



Lilja Dögg átti stórafmæli í dag/gær(?). Fyrir 20 árum varð ég stóra systir! (Átti reyndar eina litla systur fyrir en það var ekki alveg eins því Ásrún er bara árinu yngri, og ég sá hana ekki fyrr en ég var 5 eða 6 ára...) Síðan þá hef ég reynt að kenna henni allt sem ég hef lært á undan, og held mér hafi tekist ágætlega... Skrítið að hún sé "orðin stór", litla krílið...

Helgin er framundan. Ég ætla á nýnemakvöld niðri í skóla annað kvöld, þar verður ljótufatakeppni og ég stefni á sigur. Það er heilmikil stemning niðri í skóla og þvílíkur metnaður fyrir ljótum fötum svo keppnin verður hörð. Svo ef þið sjáið fólk í ljótum fötum á djamminu á föstudagskvöldið er það að öllum líkindum söngfólk.*

Á laugardaginn er stefnan svo sett á reunion svo ég bruna á Hvolsvöll. Verður gaman að hitta krakkana sem ég hef sum ekki séð síðan í 10.bekk held ég... Held svo áfram austur, heim í sveitasæluna og sunnudagsmat hjá mömmu eða ömmu.

Hlakka til að sjá þessi


og fossinn minn

Og auðvitað mömmu, pabba, Árnýju og alla...




*Ég held samt að ég komi til með að
hafa sæt föt með í poka og skipta
áður en ég rölti niður í bæ...
Verið endilega í bandi! :)

miðvikudagur

Þetta er lag dagsins, hvort sem er í þessari útgáfu eða þeirri upprunalegu.



Lagið heitir Nude og er af nýjustu plötu Radiohead, In Rainbows. Ef þið eruð ekki búin að útvega ykkur In Rainbows mæli ég með að þið gerið það fljótlega.

Það eru reyndar ótrúlega margir diskar sem ég er búin að lofa sjálfri mér að fara út í búð og kaupa núna í sumar. Aðalega íslensk tónlist, sem er að gera það gott í mínum huga í sumar! Skammast mín fyrir að vera ekki búin að kaupa Silent Treatment með Hraun, langar í Seabear-diskinn (er ekki bara kominn einn?), ætlaði að vera búin að kaupa Hjaltalín fyrir löngu, fyrir tónllistarverðlaun minnir mig meira að segja, og svo diskinn hennar Bryndísar Jakobs. Þarf að fara að drífa mig í 12 tóna...

En aðalega vildi ég deila með ykkur myndbandinu hérna fyrir ofan. Svo er aldrei að vita nema ég detti inn í einhvern voðalega skemmtilegan skrifgír á næstu dögum, aldrei að segja aldrei.

þriðjudagur

Ég er svo virkur bloggari...

Lag dagsins er klárlega "I started a blog nobody read" með hljómsveitinni Sprites. Manneskja dagsins er svo litla Sölvabakkaprinsessan sem fæddist á sunnudaginn. Ég fékk lánaða mynd af Sölvabakkablogginu til að monta mig aðeins af litlu frænku.

Svona er hún nú kát og falleg!
Skemmtilegt hvað Y-litningarnir eru sterkir í Sölvabakkagenunum. Amma og afi eiga fimm dætur, mamma eignaðist 3 áður en fyrri sonurinn kom og svo eina til viðbótar, Fríða er reyndar með þetta jafnt, eitt af hvoru, og Bjarney er með "öfug" hlutföll, tvo stráka og eina stelpu. Nýjasta viðbótin er svo önnur dóttir hennar Önnu Möggu. Það gera 13 stelpur og 5 strákar.


Ótrúlegt hvað sumarið er fljótt að líða. Júní er búinn! Á morgun er þriðjudagur, 1.júlí, og á fimmtudaginn kemur Marta! Ég er voðalega hamingjusöm með það, jafnvel þó ég sjái hana elíklega ekki fyrr en eftir helgi. Svo líða dagarnir og miðvikudaginn 16. kemur Hjalti! Hamingja í öðru veldi. Kannski jafn gott að Sigrún og Jón koma líklega ekki í sumar, ég myndi örugglega springa úr hamingju!

Ég fór, auðvitað, á tónleikana á laugardaginn. Mætti með teppi og fílaði ekki Ghostdigital, fór í grillveislu og mætti aftur tímanlega til að heyra Hoppípolla (hér er ábreiða með We are Scientist). Hoppaði svo og skoppaði þegar Björk steig á svið, svona að hluta til vegna þess að hún var frábær, og að hluta til til að halda á mér hita.

Ég er svo andvaka að ég er að spá í að skúra stofuna mína. Ef ég skúra stofuna tekur það því ekki að skilja eldhúskrókinn eftir. Ef ég skúra hann þá liggur eiginlega beint við að taka baðherbergið líka. Og varla fer ég að skilja herbergið mitt eftir? Held ég geti allavega kysst hugmyndina um svefn í nótt bless. Enda get ég sofið þegar ég er gömul.